Vantar þig vandaðan enskan texta? Þarft þú að halda kynningar eða erindi á ensku?

Ég býð upp á lausnir á öllu þessu tengdu. Ég hef meira en 12 ára reynslu í textagerð, þýðingum, lagfæringu og staðfæringu á texta, og þjálfun í kynningartækni fyrir einstaklinga og hópa. Einnig hef ég starfað sem túlkur í völdum verkefnum. Meðal viðskiptavina minna eru mörg helstu fyrirtæki landsins, ráðuneyti, auglýsingastofur, útgefendur og einstaklingar. Af þessu leiðir að verkefnin sem ég sinni eru einstaklega fjölbreytt.

Hikaðu ekki við að hafa samband ef ég get veitt einhverjar frekari upplýsingar.

Vinsamlegast athugið að ég tek aðeins að mér ritstörf á ensku, og þýðingar úr íslensku á ensku.